Ef matsfyrirtækið Standard & Poor´s fær borgað fyrir lánshæfismat í dag - hver borgaði þá fyrir allt plat-matið í uppsveiflunni - fyrir bankahrun?

S&P Sigmundur Davíð bendir á að matsfyrirtæki ( S&P) vinni lánshæfismat fyrir skjólstæðinga sína og fái greitt fyrir það. „Ég velti því fyrir mér: „Eru þau að vinna þetta mat fyrir íslensk stjórnvöld?“ Og ég set þá í samhengi við orð viðskiptaráðherra þegar Fitch birti sitt mat, áður en að gengið var frá Icesave-frumvarpinu. Og viðskiptaráðherra fyrtist við og sagði að það hefði nú eiginlega verið búið að heita því að matið kæmi ekki fyrr en eftir gengið væri frá Icesave,“ segir Sigmundur Davíð í samtali við mbl.is.

Ef matsfyrirtækið Standard & Poor´s  fékk borgað fyrir pantaða álitsgerð á gamlársdag ......

....- hver borgaði þá fyrir allt plat-matið  - til að viðhalda veðsetningu á loft-uppsveiflunni, fyrir bankahrun?

Ég man ekki betur en ríkissjóður og íslenskir bankar fengju AAA+ hjá þessum aðilum alveg fram á "elleftu stundu" fyrir bankahrun. Hver borgaði þá fyrir það?

Eru þá sem sagt Bretar og Hollendingar að borga þessum "greiningarfyrirtækjum" (S&P nú) fyrir greiningu sem hentar til að reyna að hræða Forseta Íslenska lýðveldisins til að hann staðfesti "nýju" Icesave lögin sem fyrst - helst í nótt?


mbl.is Segir nýtt lánshæfismat S&P mjög sérkennilegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Hafberg S.

Öll matsfyrirtækin vinna einnig mjög náið með AGS, svo náið að þau hafa verið gagnrýnd ásamt AGS að búa til "kreppur". einmitt með að skrúfa upp matið og skrúfa það svo mjög snöggt niður.

Þú getur kíkt á bloggið mitt. Þar er ýmislegt um AGS og fundinn sem við áttum með þeim Flanagan og Franek í Seðlabankanum.

Icesave og AGS eru bundin órjúfanlegum böndum.

Þar kom mjög skýrt fram að AGS sér fyrir sér að Ísland verði hrávöru framleiðsluland og ekki þjónustu land.

Ásta Hafberg S., 2.1.2010 kl. 17:38

2 Smámynd: Kristinn Pétursson

Það er eins gott að hafa varann á öllu þessu liði......

Mér finnst íslenskir veðurfæðingar áreiðanlegastir sérfræðinga. Góð veðurspá virðist um  75% örugg í 12 klst.

Kristinn Pétursson, 2.1.2010 kl. 17:59

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Kristinn. Það þarf að virkja sjálfstæðan vilja og skoðanir þessara þjóðfélagsþegna. Við veiðum fisk upp í Icesave og fáum tímabundið lán fyrir aðalskuldum þessa lands. Icesave er bara lítið brot af heildinni eða hvað?

Verst að þið sjómennirnir þurfið að taka  hjálparlausar skrifstofu-blókir í læri. Svona hefur ofur-græðgin farið með Íslendinga! Við kunnum ekkert annað en að heimta og kvarta! Hásólarnir kenndu þetta  jú og allir trúðu á þau fræði með bundið fyrir augun.

Staðreyndin er allt önnur. Vöknum nú öll og hættum að gera Háskólana að aðal-atvinnu og gjaldeyrissköpun þjóðarinnar og tökum upp gömlu sönnu gildin. Það er að segja virðing fyrir náttúrunni og því sem hún gefur okkur til að vera virðingarverðar heiðarlegar manneskjur á þessari jörð en ekki bara á Íslandi. við þurfum allan heiminn en ekki bara hluta hans og auðvitað allt fólkið á jörðina. Góð samskipti við aðrar þjóðir skipta máli og kosta tillits-semi og jákvæðni. Ég reyni mitt besta. Gangi þér vel. M.kv. Anna.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.1.2010 kl. 20:00

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Svo mikið veit ég... að ef við Íslendingar pössum ekki okkar Land og þjóð sjálf, þá getum við ekki ætlast til að nokkur annar geri það fyrir okkur með OKKAR hag fyrir í huga.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 2.1.2010 kl. 21:34

5 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Með okkar hag í huga.. á að vera. Ætlaði að segja fyrst með okkar hag fyrir brjósti. kveðja.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 2.1.2010 kl. 21:35

6 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þarna er atvinnutækifæri fyrir fallnar greinigardeildir. Og svona starfsemi færi vel úti á landsbyggðinni þó ekki sé hún orkufrek. Það má vera með matsfyrirtæki og greiningardeildir fyrir margvíslegar atvinnugreinar, ekki bara lánshæfismat....

Það er nefnilega ansi margt falt fyrir peninga og sem betur fer er enn eitthvað til af þeim þó nokkuð víða.....

Ómar Bjarki Smárason, 2.1.2010 kl. 22:45

7 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Matsfyrirtækin eru einn stærsti hlekkurinn í þeirri svikamyllu sem varð að fjármálahruninu.  Þau fá greitt frá þeim sem þau meta og því mátu þau verðbréfavafninga allt of hátt á sínum tíma.  Ég fjallaði nokkrum sinnum um svindl matsfyrirtækjanna árið 2008, m.a. rannsókn SEC í Bandaríkjunum á svindli þeirra.

Marinó G. Njálsson, 3.1.2010 kl. 02:04

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég man nú ekki betur en að S&P hafi alltaf HÆKKAÐ lánshæfismat föllnu bankanna eftir því sem skuldir þeirra hækkuðu og svo endaði "geimið" eins og öllum er kunnugt.  Nú "HÆKKAR" lánshæfismat ríkisins, það vekur upp spurningar um hvort ríkið sé á leið í GREIÐSLUÞROT.  Hversu marktækt er þetta mat þeirra?????

Jóhann Elíasson, 3.1.2010 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband